Stór sogæðabursti
Nánar
The Lymphatic Brush - sérhannaðir burstar sem auðvelda þér að styðja við eðlilega starfsemi sogæðakerfisins. Hannað sérstaklega til að auka flæði sogæðavökva, draga úr bólgum, minnka vökvasöfnun og styðja við náttúrulega hreinsun líkamans.
Til þess að hjálpa þér af stað að eignast settið er núna hægt að kaupa burstana staka, en mælt er með báðum stærðum þar sem þeir gegna báðir mikilvægu hlutverki í meðferðinni.
Stóri burstinn er notaður bæði á andlit og líkama og er um 75% af andlitsmeðferðinni þar sem hann losar “stíflurnar” sem myndast á stóru safnsvæðunum t.d. í hálsi og við viðbein. Hann er notaður fyrst og svo litli burstinn.
Litli burstinn er sérstaklega ætlaður í nákvæmnisvinnu í andlitinu s.s í kringum nef/munn og í kringum augu, eftir að stóri burstinn hefur “rutt veginn” og opnað fyrir flæði frá andliti.
Saman veita burstarnir heildræna örvun fyrir sogæðakerfið.
Hér geturðu fundið ýmsar upplýsingar um bæði burstana og mikilvægi þess að styðja við sogæðakerfið.
Lesa um burstann
Í pakkanum fylgir spjald með QR kóða til að skanna og fá aðgang að fullt af leiðbeiningarmyndböndum.
Ekki er hægt að skila burstum þar sem þeir flokkast sem snyrtivörur.
Burstarnir eru einkaleyfisvarðir (e. patented).
Hönnun
Cecily Braden Spa & Wellness