Sogæðaburstasett Andlit & líkami
Nánar
The Lymphatic Brush - sérhannaðir burstar sem auðvelda þér að styðja við eðlilega starfsemi sogæðakerfisins, bæði í andliti og á líkamanum. Hannað sérstaklega til að auka flæði sogæðavökva, draga úr bólgum, minnka vökvasöfnun og styðja við náttúrulega hreinsun líkamans.
Í settinu eru 2 stærðir af burstum og saman veita þeir heildræna örvun fyrir sogæðakerfið.
Stóri burstinn er notaður bæði á andlit og líkama og er um 75% af andlitsmeðferðinni þar sem hann losar “stíflurnar” sem myndast á stóru safnsvæðunum t.d. í hálsi og við viðbein. Hann er notaður fyrst og svo litli burstinn.
Litli burstinn er sérstaklega ætlaður í nákvæmnisvinnu í andlitinu s.s í kringum nef/munn og í kringum augu, eftir að stóri burstinn hefur “rutt veginn” og opnað fyrir flæði frá andliti.
Hér geturðu fundið ýmsar upplýsingar um bæði burstana og mikilvægi þess að styðja við sogæðakerfið
Lesa um burstann
Í pakkanum fylgir spjald með QR kóða til að skanna og fá aðgang að fullt af leiðbeiningarmyndböndum.
Ekki er hægt að skila burstum þar sem þeir flokkast sem snyrtivörur.
Burstarnir eru einkaleyfisvarðir (e. patented).
Hönnun
Cecily Braden Spa & Wellness