Sogæðakerfið (lymphatic system) er hreinsikerfi líkamans og eitt mikilvægasta, og um leið eitt vanmetnasta kerfið okkar.
Það vinnur stöðugt í bakgrunninum að því að halda jafnvægi þó við finnum sjaldnast fyrir því. Því er stundum líkt við “sorphreinsikerfi”, því eitt að hlutverkunum er að hjálpa til við hreinsun úrgangsefna, sem er mjög mikilvægt fyrir heilsu og varnarkerfi líkamans.
Fjarlægir úrgang og umframvökva
Ólíkt blóðrásinni hefur sogæðakerfið enga dælu eins og hjartað. Það treystir á hreyfingu, öndun og örvun til að flytja vessa.
Ef flæðið verður hægara getur myndast:
-
bólga
-
vökvasöfnun
-
þroti og bjúgur
-
„puffy“ andlit eða líkami
Gott flæði getur hjálpað til við að losa bjúg og gefið jafnari húð.
Styður ónæmiskerfið
Sogæðakerfið er ekki bara hreinsikerfi heldur leikur það lykilhlutverk í varnar- og ónæmiskerfi líkamans. Sogæðavökvinn safnar bakteríum, veirum, eiturefnum, frumuleifum og úrgangi og flytur það til eitlana sem vinna eins og n.k. síur og eftirlitsstöðvar ónæmiskerfisins.
- minni viðbragðsgeta
- meiri bólgusvörun
- aukin vökvasöfnun
Ónæmiskerfið þarf að kveikja og slökkva á bólgusvörun á réttum tíma og sogæðakerfið hjálpar til við að fjalægja bólguboðefni úr vefjum og styðja við jafnvægi eftir t.d álag eða sýkingu.
Þetta skiptir heilmiklu máli fyrir heilsu húðarinnar, hormónajafnvægi og svo almenna orku og vellíðan.
Það hefur áhrif á húðina
Þegar sogæðaflæði er gott:
-
dregur það úr þrota
-
dökkir baugar geta minnkað
-
húð verður ferskari og jafnari
-
ljómi („glow”) eykst
Hæg sogæðavirkni getur hins vegar aukið bólgur og vökvasöfnun í andliti.
Af hverju þarf stundum að styðja við það?
Vegna þess að:
-
við sitjum mikið
-
streita dregur úr flæði
-
hormónabreytingar hafa áhrif á vökvajafnvægi
-
svefnleysi og bólga hægja á kerfinu
Þar sem sogæðakerfið er ekki með „sjálfvirka dælu“, getur mild örvun eins og létt burstun, djúpöndun og hreyfing hjálpað til við að styðja við náttúrulegt flæði.